Minningarmót um Albert Sigurðsson
Tímamörk í lengri skákunum eru 90 mínútur + 30 sekúndur við hvern leik hjá keppenda. Dagskrá: Mótið hefst kl. 20.00 föstudag 9. maí og verða tefldar 1 - 3 umferð. 4. umferð. laugardag 10. maí og hefst kl. 13.00. 5. umferð um kvöldið og hefst kl. 19.30. Á hvítasunnudag hefst 6. umferð kl. 11.00 og 7. og síðasta umferð kl. 17.00. Vegleg verðlaun verða veitt á mótinu m.a. í stigaflokkum. Nánar um mótið þegar nær dregur að mótshaldinu.
Albert Sigurðsson f.24.8.1916 d. 1.2.2007. Albert var í stjórn Skákfélags Akureyrar í 23 ár, þar af gegndi hann formennsku í fimm ár, 1957-58, 1969-70, og 1974 - 77. Á 30 ára tímabili var hann skákstjóri á helstu mótum S.A. og ógleymdu Skákþingi Norðlendinga sem þau voru haldin á Norðurlandi. Albert var gerður heiðursfélagi Skákfélags Akureyrar 1989 og Skáksambands Íslands 1986. Á Skákþingi Norðlendinga 2000 var Albert afhentur viðurkenningarskjöldur fyrir störf í sambandi við Skákþing Norðlendinga.



